Við foreldrarnir vorum sko mega stolt núna áðan þegar Þórdís Ólöf, sem vill alls ekki liggja á maganum, tók uppá því að velta sér á magann og svo strax aftur á bakið:D Okkur fannst þetta kannski soldið mikið æðislegt af því Ingimar velti sér bara nánast aldrei....hann vildi bara ekkert liggja!!
Jei fyrir Þórdísi Ólöfu stóru stelpu:)
4. May 2010 - 21:45
Í dag var fyrsta foreldraviðtalið á leikskólanum hans Ingimars, Mánagarði. Halli fór af því ég sat föst í skólanum, en þær voru svo indælar á deildinni að prenta út matið. Hér er það sem stendur á matinu hans Ingimars:)
Félagsþroski, samskipti við börn og fullorðna
- Skapferli og hegðun: Ingimar Örn er blíður en fjörugur strákur. Hann er yfirleitt kátur hér í leikskólanum. Ingimar á samt til að nota hendurnar ef þannig liggur á honum og hann vill fá eitthvað sem aðrir eru með eða einhver gerir eitthvað sem honum mislíkar. Hann er mjög jákvæður og tekur þátt í öllu sem verið er að gera á leikskólanum og fer hann oftast eftir fyrirmælum.
- Tillitsemi: Ingimar er kurteis við börn og starfsfólk.
- Frumkvæði: Gott, bíður ekki eftir því að honum séu úthlutuð verkefni heldur kemur sér í það sem hann vill.
- Sjálfsöryggi: Gott, hann er í góðu jafnvægi, virðist líða mjög vel á leikskólanum.
Daglegar athafnir
- Borðhald: Ingimar er duglegur að borða. Hann borðar nánast allt. Ingimar mætti vera duglegri að nota hnífapörin og borða snyrtilegar og við erum að vinna í því.
- Klæðnaður: Það er frekar erfitt fyrir Ingimar að klæða sig í og úr. Hann er duglegur að reyna en verður oft pirraður yfir að geta ekki.
- Svefn og hvíld: Ingimar er mjög duglegur í hvíldinni, leggst á dýnuna sem hann valdi og fer að sofa.
- Salerni: Ingimar er duglegur að setjast á salerni eða koppinn.
Málþroski
- Málskilningur: Ingimar skilur flest all sem við hann er sagt.
- Tjáning: Ingimar hefur góðan orðaforða. Við eigum frekar erfitt með að skilja hann en það kemur örugglega með auknum þroska.
Hreyfiþroski
- Grófhreyfingarnar eru fínar hjá Ingimar, hann hefur mjög gaman af að hlaupa og hoppa.
- Fínhreyfingarnar eru einnig góðar hjá honum. Hann hefur mikinn áhuga á að mála, teikna og leira.
Samveru- og söngstundir
- Þessar stundir eru ekki í miklu uppáhaldi hjá Ingimari. Við reynum að hafa þær fjölbreyttar t.d. með söng, lestri, leikjum og dansi.
Hópastarf
- Ingimar er áhugasamur um alla vinnu á leikskólanum og er alltaf til í að vera með. Það er misjafnt hversu mikið úthaldið hjá honum er en vill þó alltaf prófa sem er jákvætt.
Leikurinn
- Ingimar er mjög duglegur að leika sér og er fjölbreyttur í leikjavali.
Annað
- Ingimar er kátur og glaður strákur. Hann er jákvæður og vill alltaf taka þátt í því sem við gerum í leikskólanum.
21. October 2009 - 15:43
Smá update
Ingimar er byrjaður á leikskólanum Mánagarði og gengur alveg svakalega vel. Hann skemmtir sér alveg konunglega og er farinn að vera mun duglegri að tala, sofa og bara gera allt mögulegt.
Við erum búin að fá úthlutaðri 3.ja herbergja íbúð hér á stúdentagörðunum og okkur hlakkar mikið til að flytja. Við erum meira að segja búin að kaupa nýtt stóra-stráka-rúm fyrir Ingimar til að setja í nýja sér-herbergið hans.
Við erum búin að fara í 20 vikna sónar og fengum að vita að allt lítur vel út og að það er lítil stelpa á leiðinni.
Ég er búin að fara í mæðraskoðun nr. 2 og þar gekk allt vel og allt lítur vel út.
Halli fór í aðgerð fyrir mánuði þar sem æð var fjarlægð úr fótleggnum sem ætti að þýða; engir krampar á næturnar, engir litablettir á fætinum og allavega færri æðahnútar.
Annars gengur bara allt svakalega vel og við hlökkum bara til að Ingimar verði 2.ja ára
Kv. Unnur
5. October 2009 - 20:26