Ingimar Örn og Þórdís Ólöf Hammerkríli
 

Fyrsta foreldraviđtaliđ á leikskólanum Mánagarđi

Í dag var fyrsta foreldraviðtalið á leikskólanum hans Ingimars, Mánagarði. Halli fór af því ég sat föst í skólanum, en þær voru svo indælar á deildinni að prenta út matið. Hér er það sem stendur á matinu hans Ingimars:)

Félagsþroski, samskipti við börn og fullorðna

  • Skapferli og hegðun: Ingimar Örn er blíður en fjörugur strákur. Hann er yfirleitt kátur hér í leikskólanum. Ingimar á samt til að nota hendurnar ef þannig liggur á honum og hann vill fá eitthvað sem aðrir eru með eða einhver gerir eitthvað sem honum mislíkar. Hann er mjög jákvæður og tekur þátt í öllu sem verið er að gera á leikskólanum og fer hann oftast eftir fyrirmælum.
  • Tillitsemi: Ingimar er kurteis við börn og starfsfólk.
  • Frumkvæði: Gott, bíður ekki eftir því að honum séu úthlutuð verkefni heldur kemur sér í það sem hann vill.
  • Sjálfsöryggi: Gott, hann er í góðu jafnvægi, virðist líða mjög vel á leikskólanum.

Daglegar athafnir

  • Borðhald: Ingimar er duglegur að borða. Hann borðar nánast allt. Ingimar mætti vera duglegri að nota hnífapörin og borða snyrtilegar og við erum að vinna í því.
  • Klæðnaður: Það er frekar erfitt fyrir Ingimar að klæða sig í og úr. Hann er duglegur að reyna en verður oft pirraður yfir að geta ekki.
  • Svefn og hvíld: Ingimar er mjög duglegur í hvíldinni, leggst á dýnuna sem hann valdi og fer að sofa.
  • Salerni: Ingimar er duglegur að setjast á salerni eða koppinn.

Málþroski

  • Málskilningur: Ingimar skilur flest all sem við hann er sagt.
  • Tjáning: Ingimar hefur góðan orðaforða. Við eigum frekar erfitt með að skilja hann en það kemur örugglega með auknum þroska.

Hreyfiþroski

  • Grófhreyfingarnar eru fínar hjá Ingimar, hann hefur mjög gaman af að hlaupa og hoppa.
  • Fínhreyfingarnar eru einnig góðar hjá honum. Hann hefur mikinn áhuga á að mála, teikna og leira.

Samveru- og söngstundir

  • Þessar stundir eru ekki í miklu uppáhaldi hjá Ingimari. Við reynum að hafa þær fjölbreyttar t.d. með söng, lestri, leikjum og dansi.

Hópastarf

  • Ingimar er áhugasamur um alla vinnu á leikskólanum og er alltaf til í að vera með. Það er misjafnt hversu mikið úthaldið hjá honum er en vill þó alltaf prófa sem er jákvætt.

Leikurinn

  • Ingimar er mjög duglegur að leika sér og er fjölbreyttur í leikjavali.

Annað

  • Ingimar er kátur og glaður strákur. Hann er jákvæður og vill alltaf taka þátt í því sem við gerum í leikskólanum.
21. October 2009 - 15:43



Athugasemdir

Skrifa athugasemd


Nafn


Texti